Sunday, 5 April 2009

Morgunsúr málari, með morð í huga.

Ég keyri á hverjum degi til Horsens, sem eru um 30 km.
Á morgnanna fer ég "landevejen" í staðinn fyrir hraðbrautina, því það er svo mikil umferð þar milli 7 og 8, þegar ég er á ferðinni.
Ég keyri nú yfirleitt ekki á löglegum hraða, því mér finnst þetta taka of langan tíma.
Landevejen er á löngum kafla það breiður að auðvelt er að fara framúr, jafnvel þó bílar komi á móti. Ég notfæri mér það, án þess þó að taka óþarfa sénsa, ég vil helst komast lifandi alla leið.
Einn morguninn var ég um það bil að taka framúr, búinn að gefa stefnuljós og við það að fara inn á miðjann veginn. Þá kemur bíll á þvílíkri siglingu aftan við mig og hreinlega þröngvar sér fram fyrir. Það voru bílar að koma á móti og ef ég hefði ekki sveigt til baka, þá hefði þessi bíll lent á þeim eða mér, eða hvortveggja.
Þetta var svona sendibíll, kyrfilega merktur málarafyrirtæki.
Ég keyri bara áfram og fer framúr nokkrum bílum eins og ég er vanur. Síðan kemur stuttur kafli á veginum þar sem eru 2 akreinar, þar nota ég alltaf tækifærið og fer framúr. Í þetta skipti næ ég að fara framúr 5 bílum áður en þessi tveggja akreina kafli endar.
Nema hvað, fremstur af þessum bílum er málarabíllinn og ekki hélt ég að fullorðnir menn yrðu fúlir vegna framúraksturs, en málarinn var eitthvað illa fyrirkallaður þennan morgun.
Það skiptir engum togum að hann keyrir alveg upp að mér og ég sé í baksýnisspeglinum að málarinn heldur á síma í vinstri hendi og sígarettu í hægri. Hann kemur svo þétt upp að mér að ég finn reykingalyktina af honum, en ekki nóg með það , heldur keyrir hann aftan á mig, ekki neitt rosalega, en nóg til að ég bæði finn það og heyri að bílarnir snertast.
Mér er nú orðið ljóst að maðurinn gengur ekki heill til skógar og hægi á ferðinni og ætla að stoppa úti í vegarkantinum. Ég býst við að hann geri það sama, enda er það venjan að menn ræði saman ef þeir lenda í árekstri.
Hann er hinsvegar ekki á því og brunar bara framhjá mér eins og ekkert hafi í skorist.
Ég viðurkenni að það fauk svolítið í mig, enda ekki á hverjum degi sem einhver keyrir á mig viljandi og stingur síðan af.
Ég var að hugsa um að elta hann uppi, en ákvað að gera það ekki, því það hefði sennilega endað með slagsmálum, þessi maður var örugglaga ekki viðræðuhæfur.
Ég var líka að hugsa um að kæra manninn til lögreglunnar, en hætti við það. Hann hefði örugglega neitað öllu og það sá ekkert á bílnum hjá mér vegna þess að hann er með dráttarkrók, sem betur fer.
Eins og fyrr sagði var málarabíllinn vel merktur og það var auðvelt fyrir mig að fara á netið og finna heimilisfangið, sem reyndist vera í heimahúsi.
Ég fór síðan um kvöldið með stærsta eldhúshnífinn og skar á öll dekkin á málarabílnum. Það þarf að taka svona menn úr umferð og duga engin vettlingatök. Nei nei, auðvitað gerði ég það ekki.
Það er alveg ljóst að ef ég þarf á málara að halda, þá verður það ekki þessi.

3 comments:

  1. Anonymous6.4.09

    Góð og spennandi saga úr umferðinni... ég hélt fyrst að þú hefðir í alvörunni skorið á dekkin, en svo vissi ég það þú værir ekki þannig... heheh...

    Svona í lokin. Ég henti Baldri Hermannssyni út úr bloggvinahópi mínum(hefði átt að vera búinn að því fyrir löngu síðan) eftir að hann var með leiðindi við Kop á minni síðu...

    Brattur

    ReplyDelete
  2. Júlli17.4.09

    Sæll Kop.

    Persónulega hefði ég sennilega elt þennan mann uppi en það er nú bara ég.

    En er þessi maður eigandi fyrirtækisins eða starfsmaður?
    Ef hann er starfsmaður þá áttu að sjá til þess að hann verði rekinn enda bara fífl ef svo má að orði komast.

    Kveðja, Júlíus Finnbogason

    ReplyDelete
  3. Anonymous19.4.09

    While I surf blog , i found a all new trick in http://pic-memory.blogspot.com/Vistor can comment and EMBED VIDEO YOUTUBE , IMAGE. Showed Immediately!
    EX : View Source.
    http://pic-memory.blogspot.com/2009/02/photos-women-latin-asian-pictu...(add photos and videos to Blogspot comments).
    Written it very smart!
    I wonder how they do it ? Anyone know about this , please tell me :D
    (sr for my bad english ^_^)

    email: ya76oo@ya76oo.com
    thanks.

    ReplyDelete